Eiðurinn eftir Baltasar Kormák er á góðu skriði í kvikmyndahúsum, en nú hafa yfir tuttugu þúsund manns séð myndina eftir aðra sýningarhelgi.
5,393 manns sáu myndina um helgina en alls 14,128 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 20,771 séð Eiðinn síðan hún var frumsýnd þann 9. september s.l.
Aðsókn á íslenskar myndir 12.-18. september 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
2 | Eiðurinn | 14,128 | 20,771 |