Baltasar Kormákur er í viðtali við mbl.is um fyrirhugað kvikmyndaver í Gufunesi.
Segir á mbl.is:
„Fólk er oft að spyrja mig af hverju ég er ekki úti í Hollywood en ég segi þá bara að mig langi að taka Hollywood hingað, og það góða af því,“ segir Baltasar Kormákur, en borgarráð samþykkti á dögunum að selja framleiðslufyrirtæki hans, RVK-studios, fjórar fasteignir í Gufunesi. Vonast Baltasar til þess að kvikmyndamiðstöð verði byggð þar upp á næstu árum.
Fyrirtækið hyggst reisa kvikmyndaver á svæðinu og greiðir rúma 301 milljón fyrir fasteignirnar. Umræddar eignir tilheyrðu Áburðarverksmiðjunni og telja rúmlega átta þúsund fermetra. Fyrirtækið mun greiða tæpar tvær milljónir á ári vegna vilyrðis um 19.200 fermetra svæði austan bygginganna.
Gæti orðið að miðstöð íslenskra kvikmynda
Baltasar segir það hafa verið lengi í skoðun að byggja kvikmyndaver hér á landi og reiknar með því að afhending fari fram í lok júlí eða byrjun ágúst, þegar búið verði að hreinsa svæðið, en Gámafélagið hefur haft það til afnota. Þá verður hægt að hefjast handa við að reisa kvikmyndaver og vonast Baltasar til að það verði komið í gagnið í byrjun næsta árs. Einnig verða á svæðinu höfuðstöðvar kvikmyndaversins, en lengri tíma tekur að reisa það, að sögn leikstjórans.
Vilyrði hefur verið gefið fyrir stærra landi í Gufunesi en fyrst þarf það að fara í deiliskipulag. Baltasar segist sjá fyrir sér að höfuðstöðvar RVK-studios verði í stöðvarhúsinu á svæðinu og kvikmyndaverið verði í skemmunni. „Vonandi getum við reist þar fjölþættari starfsemi og við erum að fara að þróa þær hugmyndir sem tengjast kvikmyndaiðnaðinum. Ef allt gengur upp getur þarna orðið miðstöð íslenskra kvikmynda,“ segir hann og bendir á að margir möguleikar bjóðist á svæðinu.
Hann segir afar mikilvægt að byggja upp góða kvikmyndaaðstöðu á Íslandi, bæði fyrir innlenda og erlenda kvikmyndagerðarmenn. Á Alþingi liggi fyrir hækkun á endurgreiðslunni, sem sé mikilvægt svo að Ísland sé í sömu stöðu og nágrannaþjóðirnar. Þá segir hann að Ófærð 2 gæti orðið eitt af fyrstu verkefnunum sem tekið verður upp í nýja kvikmyndaverinu.
„Maður verður að leyfa sér að dreyma til að ná þangað“
Eins og kunnugt er hefur Baltasar Kormákur leikstýrt kvikmyndum í Hollywood á borð við Contraband og Everest auk þess sem hann vinnur nú að stórmyndinni The Viking. Hann segir þó að þrátt fyrir að tækifærin séu mörg vestanhafs þá sé draumur hans að byggja upp kvikmyndaiðnaðinn á Íslandi.
„Fyrir mér hefur þetta allt dýpri tengingu ef ég geri þetta hérna,“ segir hann. „Fólk er oft að spyrja mig af hverju ég er ekki úti í Hollywood en ég segi þá bara að mig langi að taka Hollywood hingað, og það góða af því.“
Þrátt fyrir að einhverjum þyki það kannski ekki raunhæfur kostur að byggja stórt kvikmyndaver hér á landi er Baltasar fullur bjartsýni og slær á allar gagnrýnisraddir. „Það hefðu ekki margir hlustað á mig ef ég hefði sagt þegar ég var í Þinghólsskóla í Kópavogi að ég ætlaði að leikstýra Denzel Washington. Þau hefðu sent mig beint á Klepp. En maður verður að leyfa sér að dreyma til að ná þangað. Það getur vel verið að ég reynist hafa rangt fyrir mér og aðrir rétt en ég reyndi þá alla vega.“
Sjá nánar hér: Vill taka Hollywood til Íslands – mbl.is