Ugla Hauksdóttir útskrifast í dag úr leikstjórnarnámi sínu á meistarastigi við Columbia University í New York. Útskriftarmynd hennar, How Far She Went, hlaut Student Select Award og IFP Audience Award við útskriftarhátíð skólans sem fram fór fyrr í vikunni.
Hér að neðan má sjá spjall við Uglu og Chloe Lenihan, handritshöfund og framleiðanda myndarinnar, þar sem þær fara yfir gerð hennar auk þess sem nokkrum senum bregur fyrir.
Frekari upplýsingar um myndina og Uglu má finna hér.