Stór íslenskur kvikmyndafókus í Póllandi

Þessa dagana standa yfir sýningar á fjölda íslenskra kvikmynda í Póllandi. Alls eru sýndar 27 myndir og fara sýningar fram í borgunum Gdansk, Poznan og Varsjá.

Sýningarnar eru hluti af samvinnuverkefni milli Póllands og Íslands undir heitinu Ultima Thule – At the End of the World. Sýningarröðin hóf göngu sína í nóvember síðastliðnum, þegar 15 pólskar kvikmyndir voru sýndar í Bíó Paradís.

Eftirtaldar íslenskar myndir verða sýndar í borgunum þremur:

  • Ísland í lifandi myndum (1925) – leikstjóri: Loftur Guðmundsson,
  • Björgunarafrekið við Látrabjarg (1949) – leikstjóri: Óskar Gíslason,
  • Síðasti bærinn í dalnum (1950) – leikstjóri: Ævar Kvaran,
  • Morðsaga ­(1977) – leikstjóri: Reynir Oddsson,
  • Kristnihald undir jökli (1989) – leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir,
  • Börn náttúrunnar (1991) – leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson,
  • Ingaló (1992) – leikstjóri: Ásdís Thoroddsen,
  • Sódóma Reykjavík (1992) – leikstjóri: Óskar Jónasson,
  • Fíaskó (2000) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
  • Íslenski draumurinn (2000) – leikstjóri: Róbert Douglas,
  • Mávahlátur (2001) – leikstjóri: Ágúst Guðmundsson,
  • Maður eins og ég (2002) – leikstjóri: Róbert Douglas,
  • Stormviðri (2003) – leikstjóri: Sólveig Anspach,
  • Kaldaljós (2004) – leikstjóri: Hilmar Oddsson,
  • Börn (2006) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
  • Duggholufólkið (2007) – leikstjóri: Ari Kristinsson,
  • Foreldrar (2007) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
  • Veðramót (2007) – leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir,
  • Skrapp út (2008) – leikstjóri: Sólveig Anspach,
  • Brim (2010) – leikstjóri: Árni Ólafur Ásgeirsson,
  • Á annan veg (2011) – leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,
  • Borgríki (2011) – leikstjóri: Ólafur de Fleur Jóhannesson,
  • Eldfjall (2011) – leikstjóri: Rúnar Rúnarsson,
  • Málmhaus (2013) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
  • XL (2013) – leikstjóri: Marteinn Þórsson
  • Borgríki 2 – Blóð hraustra manna (2014) – leikstjóri: Ólafur de Fleur Jóhannesson,
  • Vonarstræti (2014) – leikstjóri: Baldvin Z.

Nokkrir íslenskir leikstjórar taka þátt í sýningunum. Ragnar Bragason var með leikstjóraspjall eftir sýningu á Börnum og Foreldrum í bæði Gdansk og Varsjá. Rúnar Rúnarsson verður með leikstjóraspjall í Poznan eftir sýningu á Eldfjalli og mun einnig halda „masterclass“, bæði í Poznan og Varsjá. Árni Ólafur Ásgeirsson verður svo með leikstjóraspjall eftir sýningu á Brim í Varsjá og mun einnig halda masterclass í Varsjá.

Sjá nánar hér: Stærðarinnar íslenskur kvikmyndafókus í Póllandi | FRÉTTIR | Kvikmyndamiðstöð Íslands

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR