Everest Baltasars Kormáks er tilnefnd til Satellite verðlaunanna sem International Press Academy hefur veitt frá 1996. Tilnefningin er í flokki sjónrænna brellna (Visual Efects).
Aðrar myndir sem tilnefndar eru í þeim flokki eru Spectre, Jurassic World, The Walk, The Martian og Mad Max: Fury Road.
Daði Einarsson hjá RVX hafði yfirumsjón með sjónrænum brellum í Everest.
Þess má og geta að myndin hefur nú tekið inn yfir 200 milljón dollara í tekjur alþjóðlega, sem er það langhæsta af myndum Baltasars.
Sjá má tilnefningar hér.