Marzibil S. Sæmundardóttir kvikmyndagerðarkona hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Stockfish kvikmyndahátíðarinnar. Hún hefur víðtæka reynslu meðal annars af kvikmyndagerð og verkefnastjórnun. Hún er fyrrverandi framkvæmdastjóri og varaborgarfulltrúi.
Sprettfiskur – skilafrestur til 10. janúar
Hátíðin óskar eftir stuttmyndum í stuttmyndakeppnina Sprettfiskinn.
Skilyrði fyrir stuttmyndir eru eftirfarandi:
- Hámarkslengd mynda er 30 mínútur.
- Myndirnar mega ekki vera eldri en eins árs þegar Stockfish hátíðin verður haldin 18.-28. febrúar 2016, myndir verða því að hafa verið fullunnar 18. febrúar 2015 eða síðar.
- Myndirnar verða að vera gerðar af íslenskum leikstjórum og/eða framleiðendum.
- Frumsýningarkrafa er á innsendum myndum sem þýðir að stuttmyndirnar mega hvorki hafa verið sýndar í kvikmyndahúsum né öðrum hátíðum á Íslandi. Undanskyldar eru skólasýningar sem og myndir sem hafa verið sýndar erlendis.
Skilafrestur er 10. janúar 2016. Sérstök valnefnd kvikmyndagerðarmanna mun fara yfir allar innsendar myndir.
Fimm myndir verða valdar inn á hátíðina og ein þeirra mun hljóta verðlaunin Sprettfiskur 2016. Tekið er á móti myndum á shorts@stockfishfestival.is.