Þrenn verðlaun til „Hrúta“ um helgina

Sigurður Sigurjónsson í Hrútum Gríms Hákonarsonar.
Sigurður Sigurjónsson í Hrútum Gríms Hákonarsonar.

Hrútar Gríms Hákonarsonar var valin besta kvikmyndin á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Ljubljana í Slóveníu og hlaut einnig Krzysztof Kieslowski verðlaunin fyrir bestu kvikmynd á Kvikmyndahátíðinni í Denver í Bandaríkjunum. Myndin hlaut einnig Silfurfroskinn í aðalkeppni Camerimage hátíðarinnar í Bydgoszcz í Póllandi fyrir kvikmyndatöku Sturla Brandth Grøvlen.

Hrútar hefur nú unnið til samtals 21 verðlauna á hinum ýmsu alþjóðlegu kvikmyndahátíðum og þar af eru níu aðalverðlaun.

Sigurganga myndarinnar hófst þegar myndin vann Un Certain Regard verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí síðastliðnum.

Nýverið hlaut Hrútar tilnefningu sem besta evrópska kvikmyndin á evrópsku kvikmyndaverðlaununum. Sex kvikmyndir eru tilnefndar til verðlaunanna. Verðlaunafhendingin mun fara fram í Berlín þann 12. desember næstkomandi.

Þá er myndin framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2016 í flokki kvikmynda á erlendu tungumáli. Um miðjan desember verður tilkynnt um forvalið á þeim 9 myndum sem eiga möguleika á tilnefningum og þann 14. janúar 2016 verður tilkynnt um hvaða 5 myndir hljóta endanlegar tilnefningar fyrir bestu kvikmynd á erlendu tungumáli.

Sjá nánar hér: Sigurganga Hrúta heldur áfram – vann þrenn verðlaun | Kvikmyndamiðstöð Íslands

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR