Grímur Hákonarson leikstjóri Hrúta hlaut í gær leikstjórnarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Saint Jean de Luz í Frakklandi. Þetta eru sjöundu verðlaunin sem myndin hlýtur. Verðlaununum deilir hann með franska leikstjóranum Thomas Bidegain (Cowboys).
Bidegain er þekktur sem handritshöfundur, meðal annars skrifaði hann hinar margverðlaunuðu myndir Jacques Audiard, Rust and Bone og A Prophet. Þetta er fyrsta mynd hans sem leikstjóra.
Þeir Grímur eru nú báðir staddir á Mozinet Film Days í Búdapest í Ungverjalandi þar sem myndin að ofan er tekin.