Baltasar Kormákur segir draum sinn að búa til íslenskt fyrirtæki sem geti starfað á alþjóðavettvangi og skilað hagnaði. Þetta kom fram á fundi á Kex hostel á dögunum á vegum Íslensk-ameríska viðskiptaráðsins, þar sem Baltasar ræddi fjármögnun stórra bíómynda, möguleika Íslendinga í alþjóðlegum kvikmyndaheimi og þau miklu áhrif sem aukin tengsl við bandaríska kvikmyndaiðnaðinn geta haft á Íslandi.
Morgunblaðið segir frá:
„Minn draumur var að búa til íslenskt fyrirtæki sem gæti starfað á alþjóðavettvangi og skilað hagnaði,“ sagði Baltasar. „Nú virðist sá draumur vera í sjónmáli. Að hægt sé að færa bandaríska kvikmyndagerð til Íslands,“ sagði hann og vísaði til stórmyndarinnar The Viking sem er næst á dagskrá leikstjórans.
10 milljarða fjárfesting
Universal Studios hafa keypt réttinn að þríleiknum og fjármagnið sem fer í framleiðsluna nemur um áttatíu milljónum dollara, eða um tíu milljörðum króna. „Ef mér tekst að framleiða þetta á Íslandi held ég að ég geti sagt: Mér tókst það.“
Þrátt fyrir að brúin yfir Atlantshafið sé orðin áþreifanleg sagði Baltasar hana ekki vera fullkláraða.
Hann segist ætla að berjast fyrir því að allar útitökur í Viking verði teknar á Íslandi. Hins vegar stendur vilji annarra til þess að færa a.m.k. innitökurnar til Bretlands þar sem 25 prósent framleiðslukostnaðar fæst endurgreiddur úr ríkissjóði. Á Íslandi er hlutfallið 20 prósent.
Baltasar benti á að kvikmyndaiðnaðurinn og stjórnvöld væru saman í þessum „bissness“ og vísaði til þess að hann væri t.d. að gera góða hluti með því að koma með stórmyndir, líkt og Viking, til landsins og að þá þyrfti ríkið að gera eitthvað á móti. „Ef þetta er ekki gert get ég nefnilega ekki komið með hana[Viking],“ sagði Baltasar og bætti við að hann hefði þó átt í jákvæðum samskiptum við stjórnvöld sem virtust sýna þessu skilning.
Hann mælti með því að endurgreiðslur yrðu jafnaðar og jafnvel færðar upp í 30 prósent með stærri verkefni. „Ég tel að þetta muni skila verulegum tekjum,“ sagði Baltasar og bætti við að skattaívilnanir séu einna stærsti þátturinn í ákvörðunartöku kvikmyndafyrirtækja um tökustaði.
Sjá nánar hér: „Þetta er sexí bransi“