Hrútar Gríms Hákonarsonar fór yfir tuttugu þúsund gesta markið um helgina. Fúsi Dags Kára heldur sínu striki en sýningum er hætt á Webcam.
Hrúta sáu 202 gestir um nýliðna helgi, þá fjórtándu. Alls komu 237 í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur nú 20.022 manns.
Fúsi fékk 77 gesti um helgina en alls 123 í vikunni. Heildarfjöldi gesta er komin í 12.416 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 24.-30. ágúst 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
14 | Hrútar | 237 | 20.022 |
23 | Fúsi | 123 | 12.416 |