Ensk útgáfa plakatsins fyrir kvikmyndina Þresti eftir Rúnar Rúnarsson hefur verið afhjúpað og má sjá hér. Myndin verður frumsýnd á Toronto hátíðinni sem hefst 10. september og fer þaðan á San Sebastian hátíðina á Spáni sem hefst nokkrum dögum síðar. Íslandsfrumsýning verður á RIFF þann 30. september en almennar sýningar hefjast 16. október á vegum Senu.