Hrútar, Webcam og Fúsi halda áfram í rólegheitunum, sú fyrstnefnda mun líklega ná yfir tuttugu þúsund gesta markið í næstu eða þarnæstu viku.
Framundan eru mynd Baltasars Kormáks, Everest, sem frumsýnd verður um miðjan september og síðan Þrestir Rúnars Rúnarssonar sem kemur í almennar sýningar um miðjan október.
Hrúta sáu 201 gestur um nýliðna helgi, þá þrettándu. Alls komu 367 í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur nú 19.784 manns.
Webcam fékk 15 gesti um helgina en alls 36 gesti yfir vikuna. Alls hefur myndin fengið 2.717 gesti.
Fúsi fékk 123 gesti um helgina en um vikuaðsókn er ekki vitað. Heildarfjöldi gesta er komin í 12.339 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 17.-23. ágúst 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
13 | Hrútar | 367 | 19.784 |
22 | Fúsi | 123 (helgin) | 12.339 |
6 | Webcam | 36 | 2.717 |