Hrútar er komin upp undir tuttugu þúsund gesta markið, Webcam siglir lygnan sjó og Fúsi kemur aftur í sýningar í Bíó Paradís.
Hrútar taka góðan kipp milli sýningarhelga en 239 gestir sá hana um nýliðna helgi, þá elleftu, miðað við 136 helgina á undan. Alls komu 538 í vikunni en heildarfjöldi gesta nemur nú 19.121 manns.
Webcam fékk 84 gesti um helgina en alls 147 gesti yfir vikuna. Alls hefur myndin fengið 2.619 gesti.
Fúsi er komin í sýningar á ný og nú í Bíó Paradís. Myndin fékk 53 gesti um helgina og 109 í vikunni. Heildarfjöldi gesta er komin í 12.098 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 3.-9. ágúst 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
11 | Hrútar | 538 | 19.121 |
4 | Webcam | 147 | 2.619 |
20 | Fúsi | 109 | 12.098 |