Webcam Sigurðar Antons Friðþjófssonar er í níunda sæti eftir frumsýningarhelgina en Hrútar Gríms Hákonarsonar tekur góðan kipp uppávið eftir áttundu sýningarhelgi. Sýningum á Bakk er lokið en Albatross er enn í Háskólabíói.
Webcam, sem er frumraun Sigurðar og gerð án styrkja, fékk 349 gesti um helgina en alls 1.487 gesti með forsýningum. Gestir hafa látið ánægju sína í ljós á samfélagsmiðlum en opinber gagnrýni hefur ekki birst enn.
Aðsókn á Hrúta jókst um 20% yfir helgina miðað við síðustu helgi. Það teljast nokkur tíðindi nú þegar myndin er á áttundu sýningarviku. Myndin er í fjórða sæti aðsóknarlistans en 569 sáu myndina um helgina og alls 944 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 17.386 manns.
Fúsi Dags Kára er komin í 11.834 manns í heildaraðsókn og situr nú í 11. sæti eftir 17 sýningarhelgar. 88 sáu hana um helgina en tölur um aðsókn í vikunni liggja ekki fyrir.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 13.-19. júlí 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
Ný | Webcam | 1.487 | 1.487 |
8 | Hrútar | 944 | 17.386 |
17 | Fúsi | 11.834 |