Hrútar færast upp um eitt sæti milli sýningarhelga í annars dræmri aðsóknarviku þar sem gott veður spilar líklega inní.
Myndin er því í fjórða sæti eftir nýliðna helgi sem var sú fimmta í röðinni. 470 sáu myndina um helgina en alls 1.388 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 14.127 manns.
Albatross Snævars Sölvasonar er í níunda sæti eftir þessa sýningarhelgi og fellur um tvö sæti. Myndin fékk 142 gesti um helgina en alls 959 í vikunni. Heildaraðsókn er því komin í 3.601.
Fúsi Dags Kára er komin í 11.579 manns í heildaraðsókn og situr nú í 12. sæti eftir 14 sýningarhelgar. 62 sáu hana um helgina en alls 91 í vikunni.
Bakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, er áfram í þrettánda sæti eftir áttundu sýningarhelgi, en 118 sáu hana í vikunni sem leið. Helgaraðsóknin nam 52 manns en heildaraðsókn er komin í 7.401 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 22.-28. júní 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
5 | Hrútar | 1.388 | 14.127 |
2 | Albatross | 959 | 3.601 |
8 | Bakk | 118 | 7.401 |
14 | Fúsi | 91 | 11.579 |