Nú eru aðeins 8 klukkustundir þar til söfnun Bíó Paradísar á Karolina Fund rennur út. Söfnunin snýst um að útvega fé til að koma upp aðgengi fyrir hjólastóla inní sali bíósins ásamt tilheyrandi aðgerðum. Þrír fjórðu hlutar markmiðs hafa náðs og hefur söfnunin tekið gríðarlegan kipp á síðasta sólarhring.
Viljir þú styrkja málefnið geturðu smellt á hlekkinn fyrir neðan til að kaupa miða eða kort til að bæta aðgengi fólks í hjólastólum í Bíó Paradís:
Bíó Paradís fyrir alla – líka fólk í hjólastólum – Karolina Fund