Pólska sölufyrirtækið New Europe Film Sales annast sölu á Hrútum Gríms Hákonarsonar á alþjóðlegum markaði. Sala á myndinni gengur vel á yfirstandandi Cannes hátíð.
Myndin hefur þegar verið seld til Benelux landanna (Belgía, Holland, Luxemborg), Grikklands og Taiwan. Rétt fyrir hátíðina var gengið frá sölu myndarinnar á frönskum markaði.
Þá hafa dreifingaraðilar frá Norðurlöndunum, þýskumælandi löndum, Asíu og Bandaríkjunum sýnt mikinn áhuga að sögn New Europe og er búist við frekari samningum um sölu myndarinnar á næstu dögum.
Sjá nánar hér: Cannes title ‘Rams’ scores sales