Þrjár íslenskar kvikmyndir eru nú til sýnis í kvikmyndahúsum. Fúsi Dags Kára gengur sæmilega en Blóðberg og Austur, sem frumsýnd var um helgina, njóta lítillar aðsóknar.
Austur Jóns Atla Jónassonar fékk 351 gest um helgina og er í 9. sæti aðsóknarlistans. Með forsýningum hafa alls 1.151 séð myndina.
Blóðberg Björns Hlyns Haraldssonar er í 14. sæti eftir 2. sýningarhelgi, en þá komu 91 á myndina og 292 í vikunni. Alls hafa 383 séð hana í bíó.
Fúsi Dags Kára hefur nú fengið rúmlega sjö þúsund gesti eftir fjórðu sýningarhelgi. Myndin er í sjötta sæti á aðsóknarlista FRÍSK. 562 sáu myndina um helgina en alls 1.391 í vikunni. Heildaraðsókn stendur nú í 7.024 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 13.-19. apríl 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
4 | Fúsi | 1.391 | 7.024 |
Ný | Austur | 351 | 1.151 |
2 | Blóðberg | 292 | 383 |