Blóðberg Björns Hlyns Haraldssonar var frumsýnd í bíó á föstudag en hafði verið sýnd á Stöð 2 fimm dögum áður (páskadag). Bíóaðsókn á myndina er dræm en sjónvarpsáhorf var með ágætum.
Aðeins 137 sáu myndina yfir helgina, en forsýningartölur eru ekki gefnar upp af einhverjum ástæðum. Myndin er í 11. sæti á aðsóknarlista FRÍSK eftir opnunarhelgina.
Samkvæmt áhorfsmælingum Gallup sáu alls 44.000 manns myndina í uppsöfnuðu áhorfi á Stöð 2 á páskadag. Meðaláhorf var 32.000 manns. Miðað er við mengið 12-80 ára.
Fúsi Dags Kára hefur fengið tæpa sex þúsund gesti eftir þriðju sýningarhelgi. Myndin fer úr fjórða sæti í það fimmta á aðsóknarlista FRÍSK. 752 sáu myndina um helgina en alls 1.811 í vikunni. Heildaraðsókn stendur nú í 5.823 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 6.-12. apríl 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
3 | Fúsi | 1.811 | 5.823 |
Ný | Blóðberg | 137 | 137 |