Hvalfjörður, hin margverðlaunaða stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, er enn að vinna verðlaun á alþjóðlegum hátíðum og eru þau nú orðin 18 talsins.
Myndin var nýlega valin stuttmynd ársins á „El Corto del Año“, alþjóðlegri kvikmyndahátíð dreifingarfyrirtækisins Promofest í Madrid ásamt dönsku/finnsku stuttmyndinni Listen. Verðlaununum fylgir dreifingarsamningur fyrir yfir 1000 kvikmyndahátíðir um allan heim. Þar sem sigurvegararnir voru tveir að þessu sinni mun Hvalfjörður hljóta dreifingu á u.þ.b. 500 hátíðir víðsvegar um heiminn.
Hvalfjörður, sem var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2013 og hlaut þar sérstök dómnefndarverðlaun, vann einnig nýlega til aðalverðlauna á International Short and Independent Film Festival í Dhaka, Bangladesh, sem fór fram rétt fyrir jólin 2014.
Nýjustu alþjóðlegu verðlaunin komu svo í gærkvöldi á kvikmyndahátíðinni Kustendorf International Film and Music Festival í Serbíu. Kvikmyndatökumaður Hvalfjarðar, Gunnar Auðunn Jóhannsson, veitti verðlaununum sem nefnast Brons eggið, viðtöku og hljóp þar í skarðið fyrir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson.
Myndin hefur tekið þátt í gífurlegum fjölda kvikmyndahátíða, yfir 100 talsins, og unnið til samtals 18 alþjóðlegra verðlauna á þeim ásamt því að hafa verið valin stuttmynd ársins á Edduverðlaununum 2014. Auk þess var Hvalfjörður tilnefnd til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir bestu stuttmynd á síðasta ári.
Þess má geta að nýjustu stuttmynd Guðmundar, sem ber heitið Ártún, gengur vel við að feta í fótspor Hvalfjarðar, en hún var nýverið valin til keppni á þrítugustu alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara sem er ein af stærstu hátíðum Bandaríkjanna. Ártún var frumsýnd á RIFF undir lok september á síðasta ári og hefur nú þegar verið valin á hátt í 20 hátíðir og unnið til tvennra stórra verðlauna; aðalverðlaun Brest í Frakklandi og Gullna Skjöldinn í Chicago, Bandaríkjunum.