Ólafur Darri Ólafsson er þessa dagana við tökur á kvikmyndinni The Last Witch Hunter með Vin Diesel í aðalhlutverki, en á föstudag hefjast sýningar hér á landi á kvikmyndinni A Walk Among the Tombstones þar sem Ólafur Darri leikur á móti Liam Neeson.
Mark Adams hjá Screen talar lofsamlega um myndina og hrósar Ólafi Darra sérstaklega í umsögn sinni. Myndin fær einnig fína dóma hjá Empire.
Sjá má senu úr myndinni með þeim kumpánum hér að neðan og einnig stiklu myndarinnar.
Sjá nánar hér: Ólafur Darri hótar Liam Neeson í A Walk Among the Tombstones | Kvikmyndavefurinn Svarthöfði.