Hross í oss Benedikts Erlingssonar, sem nú er í sýningum í Bretlandi við einróma lof gagnrýnenda, hlaut hin svokölluðu Golden Iris verðlaun, aðalverðlaun Brussels Film Festival, sem lauk s.l. laugardag.
Verðlaunafé nemur €10,000 eða um 1.550.000 krónum. Þetta eru 23. verðlaunin sem myndin hlýtur (að meðtöldum sex Edduverðlaunum).
Sjá nánar hér: Of Horses And Men gallops to Brussels victory | News | Screen.