Aftonbladet: „Hross í oss“ sögð brokkgeng sérviskuleg sjarmasprengja

hross-í-oss---myndbrellurSýningar á Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson hefjast í dag í norskum kvikmyndahúsum.

Aftonbladet kallar myndina „sérviskulega sjarmasprengju með fullt af svörtum húmor og óvæntum fléttum.“ Gagnrýnandinn, Maria Fosheim Lund, bendir á að myndin hafi slegið í gegn bæði hjá gagnrýnendum og áhorfendum á hátíðum víða um heim að undanförnu og „því séu góðar líkur á að mörgum muni líka betur við myndina en mér.“

Lund segir myndina brokkgenga og þegar frásögnin höktir sé athyglinni beint að ægifögru landslaginu og fallegum hestum. Mest áhersla sé lögð á persónu Kolbeins (Ingvar E. Sigurðsson) og kaflinn þegar drukkinn maður sundríður útí rússneskan togara til að útvega sér ódýrt áfengi sé frábær en aðrar persónur séu síður áhugaverðar.

Í niðurlagi umsagnar sinnar segir Lund:

„Líkt og margar íslenskar myndir spilar Hross í oss upp þá mynd sem Íslendingar vilja gjarnan gefa af sér sem sérstætt fólk sem búi í alltumlykjandi náttúru. Þessar sjálfmiðuðu og sjálfumglöðu áherslur hefur einnig mátt finna í mörgum norskum myndum en sem betur fer eru þessar áherslur víkjandi. Íslenskar kvikmyndir ættu að gera það líka.“

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR