Tim Bevan, framleiðandi hjá Working Title, segir í viðtali við kvikmyndatímaritið Empire að Baltasar Kormákur hafi hentað kvikmyndinni Everest fullkomlega. Myndin hafði verið á teikniborðinu í þrettán ár þegar framleiðendurnir ræddu við Baltasar og þá loks komst hreyfing á hlutina.
Í vikunni var birt fyrsta ljósmyndin úr Everest – hún sýnir Jason Clarke, einn af aðalleikurum myndarinnar, í kröppum dansi á Everest-fjalli. Tveir Íslendingar fara með hlutverk í myndinni, þau Charlotte Bøving og Ingvar E. Sigurðsson.
Sjá nánar hér: „Baltasar hentar Everest mjög vel“ | RÚV.