![Charlotte Böving og Ingvar E. Sigurðsson í Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/09/hross-í-oss-charlotte-og-ingvar.jpg?resize=300%2C132&ssl=1)
Ekkert lát virðist vera á verðlaunum til handa Hross í oss Benedikts Erlingssonar á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Í dag mun myndinnni falla í skaut tvenn verðlaun á Festival de Cinéma Européen des Arcs í Les Arcs í Frakklandi á lokadegi hátíðarinnar. Myndin fær annarsvegar dómnefndarverðlaunin og hinsvegar verðlaun fyrir tónlist Davíðs Þórs Jónssonar.
Alls hefur myndin nú fengið 10 verðlaun á 7 kvikmyndahátíðum. Framundan eru hátíðir til dæmis í Bandaríkjunum og Svíþjóð.
Sjá nánar hér: Verðlaunahross á flugi – mbl.is.