Kjarninn birtir hálftíma viðtal við Benedikt Erlingsson leikstjóra. Þar ræðir hann um íslensk stjórnmál, stöðu íslensks menningarlífs, hugmyndafræðileg átök og eigin feril í kvikmyndagerð.
Benedikt segir meðal annars að það geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér að draga saman framlög til lista og menningar um þessar mundir. Hörð hugmyndafræðileg átök eigi sér stað í samfélaginu og við þær aðstæður séu stoðir menningarlífsins sérstaklega mikilvægar. „Menningin er sífellt að minna okkur á hvaðan við komum og hvar við erum stödd,“ segir Benedikt.
Sjá nánar hér: Þurfum að vita hvaðan við komum og hvar við erum.