Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson hlaut svokölluð „Kutxa – New Directors Award“ á kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á Spáni sem var að ljúka rétt í þessu. Verðlaunin eru veitt fyrstu eða annarri mynd leikstjóra og nema 50 þúsund evrum eða um 8.2 milljónum króna og skiptast til helminga milli leikstjóra og spænsks dreifingaraðila.
Myndin hefur fengið afbragðs viðbrögð á hátíðinni og meðal annars kallaði Peter Bradshaw hjá The Guardian hana bestu mynd hátíðarinnar.
Sjá verðlaunin hér: San sebastián Film Festival.