Örvarpið: örmyndahátíð RÚV á netinu

örvarpiðRÚV stendur fyrir örmyndahátíð á vef sínum og kallast hátíðin Örvarpið. Þetta er hugsað sem vettvangur fyrir upprennandi, skapandi og framsækið fólk í kvikmyndalist. Hátíðin er ætluð öllum með áhuga á kvikmyndalist, reyndum sem óreyndum, ungum sem öldnum. Myndir mega vera allt að fimm mínútum.

Sérstök valnefnd velur vikulega eitt verk til sýningar á vefnum. Valin verk verða í kjölfarið til sýningar á örmyndahátíðinni Örvarpið í Bíó Paradís, sem haldin verður eftir áramót. Bestu verkunum verða einnig gerð skil í sjónvarpi.

Sjá nánar hér: Örvarpið | RÚV.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR