Vefurinn Kvikmyndagerðarmaður.is er farinn í loftið. Vefnum er ætlað að halda utan um upplýsingar um þá sem starfa í kvikmynda- og sjónvarpsbransanum og er hægt að leita að fólki eftir starfsheitum. Ægir Guðmundsson, eigandi Ljósaskipta, er umsjónarmaður vefsins. Skráning á hann er ókeypis.