Heimildamyndin Reynir sterki eftir Baldvin Z og stuttmyndin Viktoría eftir Brúsa Ólason hafa verið valdar til þátttöku á Nordisk Panorama sem fram fer í Malmö 20.-25. september næstkomandi.
Stuttmyndin Viktoría eftir Brúsa Ólason var valin besta myndin á Sprettfiskinum, stuttmyndakeppni Stockfish hátíðarinnar og hlaut Brúsi milljón króna tækjaúttekt hjá Kukl í verðlaun.