Þorfinnur Guðnason heimildamyndasmiður frumsýnir í næstu viku sitt nýjasta verk, Vikingo, mynd um Íslendinginn Jón Inga Gíslason sem hefur síðustu 20 ár stundað hanaat í Dóminíska lýðveldinu og er orðinn þekktur hjá heimamönnum sem Víkingo. Kastljós RÚV ræddi við Þorfinn af þessu tilefni, en hann berst nú við illvígt krabbamein.