Svo virðist sem á annan tug bíómynda og sjónvarpssería verði í tökum á árinu, en miserfiðlega gengur að fá staðfestingar, bæði um hvort verkefni séu að fara í gang og einnig hvenær.
Sólveig Anspach mun hefja tökur á framhaldi kvikmyndanna Skrapp út og Queen of Montreuil í september nk. og mun myndin heita The Aquatic Effect. Mbl.is segir frá.