Guðný Rós Þórhallsdóttir sigraði Sprettfiskinn, stuttmyndasamkeppni Stockfish, með stuttmynd sinni C-vítamín. Hlaut hún í verðlaun einnar milljón króna tækjaúttekt hjá Kukl.
Stockfish hátíðin hefst á morgun fimmtudag í Bíó Paradís. Opnunarmyndin er The Other Side of Hope eftir sjálfan Aki Kaurismäki sem hlaut Silfurbjörninn á nýafstaðinni kvikmyndahátíð Berlinale fyrir bestu leikstjórn. Um 30 kvikmyndir eru sýndar á hátíðinni auk þess sem boðið er uppá fjölda viðburða þar sem kvikmyndir (og sjónvarpsefni) er reifað frá ýmsum sjónarhornum.
Heimildamyndin Línudans eftir Ólaf Rögnvaldsson verður Íslandsfrumsýnd á Stockfish hátíðinni sem fram fer dagana 23. febrúar til 5. mars. Myndin, sem frumsýnd var á Lubeck hátíðinni s.l. haust, fjallar um baráttu bænda og landeigenda gegn lagningu Blöndulínu 3 sem Landsnet hyggst leggja frá Blönduvirkjun til Akureyrar, um Vatnsskarð, Skagafjörð, Öxnadalsheiði og Hörgárdal.
Stockfish hátíðin, sem fram fer í þriðja sinn í Bíó Paradís dagana 23.febrúar til 5. mars, óskar eftir stuttmyndum til að taka þátt í Sprettfisknum, stuttmyndaflokki hátíðarinnar. Hátíðin óskar einnig eftir umsóknum vegna flokksins Verk í vinnslu.