Þessar íslensku heimildamyndir eru á dagskrá RÚV um páskana

Fjórar nýjar og nýlegar heimildamyndir verða á dagskrá RÚV um páskana, Jörðin undir fótum okkar, Ó góða gamla Grindavík, Nýdönsk í raunheimum og 14 ár.

Nýdönsk í raunheimum – skírdag kl. 20:45

Ný heimildamynd í leikstjórn Þórs Freyssonar. Hljómsveitin Nýdönsk undirbýr útgáfutónleika plötunnar Í raunheimum, í æfingabúðum í Borgarfirði. Myndin veitir einstaka innsýn í æfingar og upptökur og samstarf ólíkra manna sem enn er farsælt eftir áratugi. Framleiðsla: Trabant. Í kjölfarið verður sýnd upptaka frá útgáfutónleikum plötunnar.

Ó góða gamla Grindavík – föstudaginn langa kl. 19:40

Ný íslensk heimildamynd í leikstjórn Margrétar Hrafnsdóttur um náttúruhamfarir á Reykjanesskaga. Íbúar Grindavíkur neyddust til að yfirgefa bæinn þegar þar fór að gjósa og allt var gert til að koma í veg fyrir að bærinn færi undir hraun. Framleiðendur: Hlín Jóhannesdóttir og Margrét Hrafnsdóttir.

14 ár – páskadag kl. 20:15

Íslensk heimildamynd frá 2017 í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Davíðs Alexanders Corno. Rætt er við hóp ungmenna og innsýn fengin í líf þeirra, áhugamál, fjölskyldu og framtíðardrauma. Áður var rætt við sama hóp fyrir sjö árum í heimildarmyndinni Sjö ár (2011), sem er hægt að sjá hér í spilara RÚV. Nú eru krakkarnir orðnir fjórtán ára og margt breytt síðan þá. Framleiðandi: Nýr kafli ehf.

Rammi úr Jörðin undir fótum okkar.

Jörðin undir fótum okkar – annan í páskum kl. 19:40

Heimildamynd frá 2025 í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg. Fjallað er um sólsetur lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Yrsa hefur starfað á hjúkrunarheimilinu í fjölda ára og myndað náin tengsl við heimilisfólkið sem jafnframt er viðfangsefni myndarinnar. Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska og kærleikur skín í gegn. Framleiðandi: Hanna Björk Valsdóttir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR