Ari Kristinsson heiðursgestur Stockfish og heiðursfélagi í ÍKS fyrir framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar

Ari Kristinsson var heiðursgestur Stockfish hátíðarinnar í ár og var við það tækifæri gerður að heiðursfélaga í ÍKS, félagi íslenskra kvikmyndatökustjóra.

Ari hefur um áratugaskeið verið einn af áhrifamestu kvikmyndagerðarmönnum Íslands og lagt sitt af mörkum til íslenskrar kvikmyndagerðar sem kvikmyndatökustjóri, framleiðandi, klippari, handritshöfundur og leikstjóri.

Sem kvikmyndatökustjóri hefur Ari tekið þátt í gerð fjölda kvikmynda, þar á meðal Rokk í Reykjavík, Nýju lífi, Löggulífi, Skyttunum, Magnúsi, Börnum náttúrunnar, Bíódögum, Cold Fever, Djöflaeyjunni, Myrkrahöfðingjanum, Mömmu Gógó og Sumarlandinu.

Börn náttúrunnar, í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar, var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestu erlendu kvikmyndina árið 1992. Fyrir sama verk hlaut Ari verðlaun fyrir bestu listrænu stjórnun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Montréal.

Árið 2010 var hann einnig tilnefndur til Edduverðlauna fyrir kvikmyndatökustjórn á Mömmu Gógó.

Ari hefur jafnframt gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks kvikmyndaiðnaðar. Hann var formaður Félags kvikmyndatökustjóra í átta ár, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda í átta ár, sat í kvikmyndaráði í átta ár og er einn af stofnendum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Þá var hann einnig meðal stofnenda Bíó Paradísar og fyrsti stjórnarformaður bíósins. Ari starfaði sem ráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands 2012 til 2020. Auk þess starfaði Ari hjá Íslensku kvikmyndasamsteypunni, Hrif ehf og Bergmyndum.

Með því að heiðra Ara Kristinsson viðurkennir Stockfish einstakt framlag hans til íslenskrar kvikmyndagerðar og áhrif hans á þróun kvikmyndamenningar á Íslandi, segir í tilkynningu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR