Alls hlutu 32 kvikmyndaverkefni styrk úr sjóðnum að þessu sinni, en meðal þeirra voru ný verkefni eftir nokkur af þekktustu nöfnum evrópskrar kvikmyndagerðar, þar á meðal Cristian Mungiu, Justine Triet og Mia Hansen-Løve.
Eurimages er sjóður sem starfar á vegum Evrópuráðsins og veitir styrki til samframleiðslu evrópskra kvikmynda og heimildamynda í fullri lengd.
Kvikmynd Gríms Hákonarsonar, 200 Kópavogur, hlýtur styrk að upphæð 267.000 evrur, sem svarar til rúmlega 38 milljóna íslenskra króna Sjóðurinn veitti í þessari úthlutun samtals 9,8 milljónum evra til verkefna, þar af tveimur heimildamyndum og einni teiknimynd. Þetta var fyrsta úthlutun ársins hjá sjóðnum og endurspeglar bæði umfang samkeppninnar og þann alþjóðlega gæðastimpil sem felst í því að hljóta stuðning.
200 Kópavogur hefur þegar hlotið framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði. Myndin gerist á sjöunda áratugnum og fjallar um tvo bræður sem eru meðal fyrstu íbúa nýs bæjar á Íslandi. Dag einn biður eldri bróðirinn þann yngri um greiða sem á eftir að hafa djúp áhrif á líf þeirra beggja. Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handrit myndarinnar. Hún er framleidd af Söru Nassim og Grímari Jónssyni hjá Sarimar Films, en hún er samframleiðsla milli Íslands, Lúxemborgar, Frakklands og Danmerkur.













