Ari Kristinsson heiðraður af ÍKS á Stockfish hátíðinni

Ari Kristinsson kvikmyndatökustjóri og leikstjóri verður heiðraður af ÍKS, félagi íslenskra kvikmyndatökustjóra, á Stockfish þann 28. mars.

Ari Kristinsson er einn fremsti kvikmyndatökustjóri Íslands. Á ferli sínum hefur hann komið að fjölmörgum af þekktustu kvikmyndum íslenskrar kvikmyndasögu sem stjórnandi kvikmyndatöku, þar á meðal Djöflaeyjunni, Bíódögum, Nýju lífi, Magnúsi, Á köldum klaka og Börnum náttúrunnar, sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin.

Í tilkynningu frá ÍKS segir að verk hans einkennist af sterkri sjónrænni nálgun, næmni fyrir íslenskri náttúru og hæfileika til að styðja við frásögn með myndmáli.

Börn náttúrunnar verður sýnd á sérstakri heiðurssýningu í Bíó Paradís þann 28. mars kl. 16:30. Að sýningu lokinni ræðir Ari störf sín og feril með Tómasi Erni Tómassyni forseta ÍKS.

Í tengslum við sýninguna mun ÍKS formlega veita Ara nafnbótina Heiðursfélagi ÍKS. Hann verður þar með annar heiðursfélagi ÍKS frá upphafi, en áður hefur Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri hlotið þann heiður.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR