Leikstjórar eru Freymar Þorbergsson og Einar Baldvin Arason. Einar Baldvin, Hannes Óli Ágústsson og Katrín Björgvinsdóttir skrifa handrit. Skuggar þeirra Einars Baldvins og Freymars framleiðir í samvinnu við Hero Productions.
Hæst fjallar um fjóra kennara sem ákveða að leysa öll sín, og önnur vandamál þjóðfélagsins, með því að ræna nemendafélagið í skólanum. Augljóslega gengur það ekki upp eins glæsilega og þau sáu það fyrir sér.
Í brennidepli eru Njáll, félagsfræðikennari og fjölskyldufaðir í fjárhagskrísu, og Hólmar, sögukennari með einstaklega sterkar skoðanir og takmarkað þol fyrir samtímanum. Með þeim í liði eru Ragna, aðstoðarskólastjóri sem starfar undir hælnum á óhæfum skólastjóra, og Bonní, fyrrverandi vonarstjarna Íslands í knattspyrnu sem glímir við erfiða fortíð. Saman flækjast þau inn í atburðarás sem þau gera sér engan vegin grein fyrir.
Aðalhlutverk eru í höndum Hannesar Óla Ágústssonar, Friðgeirs Einarssonar, Láru Jóhönnu Jónsdóttur og Ásthildar Úu Sigurðardóttur. Meðal annarra leikara eru Krummi Kaldal Jóhannsson, Helga Salvör Jónsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Leifur Þór Þorvaldsson, Saga Garðarsdóttir og Þorsteinn Bachmann.













