Pálmi Guðmundsson ráðinn til Sagafilm

Pálmi Guðmundsson fjölmiðlamaður- og framleiðandi hefur verið ráðinn til starfa hjá Sagafilm þar sem hann mun gegna starfi viðskipta- og verkefnastjóra.

Í fréttatilkynningu frá Sagafilm segir:

Pálmi mun móta og hrinda í framkvæmd bæði alþjóðlegri og innlendri sölustefnu Sagafilm, byggja upp og leiða sterk meðframleiðsluverkefni og finna nýjar tekjuleiðir í framleiðslu kvikmynda, sjónvarps og stafræns efnis. Samhliða verður lögð áhersla á að efla þjónustuframleiðslu á Íslandi og styðja við viðskiptaþróun og markaðslega stöðu fyrirtækisins.

“Ráðningin endurspeglar skýra stefnu Sagafilm um að sameina skapandi, metnaðarfulla og fjölbreytta framleiðslu sterkri og skýrri viðskiptastefnu sem miðar að því að tryggja sjálfbæran vöxt hér heima sem og á alþjóðamarkaði,” segir Skarphéðinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Sagafilm.

„Pálmi býr yfir víðtækri reynslu og hefur sýnt í verkum sínum sem stjórnandi sjónvarps- og útvarpsstöðva að hann hefur einstaka hæfni til að móta öflugar viðskipta- og markaðsstefnur fyrir nýstárlega og vandaða framleiðslu sem uppfyllir eftirspurn og kröfur á síbreytilegum markaði,“ segir Skarphéðinn.

Pálmi hefur ríflega 22 ára reynslu úr fjölmiðlum og markaðsmálum. Hann var dagskrárstjóri í Sjónvarpi Símans í tæp tíu ár. Þar á undan, frá 2007-2013, var hann framkvæmdastjóri dagskrár- og markaðssviðs 365 miðla, sem og markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins frá 2001-2006.

Pálmi nam fjölmiðla- og rekstrarhagfræði við Walter Cronkite School of Journalism í Arizona State University. Hann hefur jafnframt sótt stjórnendaþjálfun, Advanced Management Program hjá IESE University of Navarra í New York og í samningatækni og stjórnun hjá Harvard Law í Boston.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR