Vísir um RÖSKUN: Leyndarmál og tráma

Magnús Jochum Pálsson skrifar um Röskun eftir Braga Þór Hinriksson í Vísi og segir hana meðal annars ágætlega fléttaða og vel leikna en líði fyrir endurtekningarsemi og skort á persónusköpun.

Magnús Jochum Pálsson skrifar um Röskun eftir Braga Þór Hinriksson í Vísi og segir hana meðal annars ágætlega fléttaða og vel leikna en líði fyrir endurtekningarsemi og skort á persónusköpun.

Magnús skrifar:

Röskun er óhugnarlegur sálfræðitryllir með góðum leikurum, myndatöku og fléttu sem afvegaleiðir áhorfendur. Gaman er að sjá loksins mynd sem gerist í Reykjavík eftir landsbyggðarþráhyggju kvikmynda síðustu ár.

Leikhópurinn er heilt yfir nokkuð góður. Þuríður Blær og Unnur Birna bera af í aðalhlutverkunum tveimur, Arnar Dan er aðeins of ýktur og svo sýna Kolbeinn Arnbjörnsson og Ólafía Hrönn á sér skemmtilegar hliðar.

Fjöldi ólíkra þráða eykur á óvissuna en dregur líka úr persónusköpun og dýpt. Senur sem eiga að skjóta áhorfendum skelk í bringu eru einhæfar og ofnotaðar sem dregur úr krafti þeirra. Þrátt fyrir það tekst vel að hræða áhorfendur upp úr skónum og halda þeim á sætisbrúninni til endaloka.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR