Morgunblaðið um RÖSKUN: Æsispennandi kvikmynd

Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar í Morgunblaðið um Röskun Braga Þórs Hinrikssonar og segir meðal annars frammistöðu allra aðalleikara hreint út sagt stórkostlega "og er langt síðan undirrituð hefur séð jafn gott flæði og samspil í handriti og leik í íslenskri kvikmynd."

Díana Sjöfn skrifar meðal annars:

Spennan er mikil í bíósalnum allt frá fyrstu senu þegar rautt blóð rennur saman við hvítan mjólkurpoll eftir að glas brotnar í átökum ungs pars í huggulegri kjallaraíbúð. Áhorfendum er síðan haldið á nálum í sætum sínum allt frá þessari fyrstu stundu með ótrúlegri söguframvindu og þó allra helst með stórkostlegri frammistöðu aðalleikaranna.

Leikurinn er þó sá þáttur sem stelur kannski hvað mest senunni en frammistaða allra aðalleikara er hreint út sagt stórkostleg og er langt síðan undirrituð hefur séð jafn gott flæði og samspil í handriti og leik í íslenskri kvikmynd. Allar persónur eru fullmótaðar og allar samræður virka mjög raunverulegar. Handritið er því virkilega vel smíðað.

Það er mikið lagt upp úr því sjónræna í kvikmyndinni og eru mörg skotin virkilega falleg og vel smíðuð. Þá er einnig vel gert hvernig víðu skotin ná að túlka einmanaleika og einangrun aðalpersónunnar og hvernig mismunandi fókuspunktar eru notaðir til að sýna andlegt eða líkamlegt ástand persóna. Hvernig klippt er milli fortíðar og nútíðar er einnig afar lipurlega gert og styður fallega við tvískipta söguna.
Röskun er æsispennandi kvikmynd og er von mín, eftir að hafa horft á stórkostlegan leikinn í henni, að ennþá meira verði gert í íslenskri kvikmyndagerð á næstu misserum.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR