HILDUR fær mikið áhorf hér og í Finnlandi

Þáttaröðin Hildur í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur hefur slegið í gegn hjá íslenskum og finnskum sjónvarpsáhorfendum. Sagafilm framleiðir þættina.

Morgunblaðið skýrir frá því að þáttaröðin hafi farið mjög vel af stað í Sjónvarpi Símans Premium og sé þegar orðin ein sú vinsælasta í sögu miðilsins. Miðillin hefur eftir Símanum að viðtökurnar hafi verið afar öflugar frá frumsýningu og áhorfstölur fyrstu dagana setja Hildi í hóp allra stærstu frumsýninga íslensks efnis.

Áhorf hefur farið fram úr væntingum og sýnir skýrt þann mikla áhuga sem ríkir á vönduðu íslensku sjónvarpsefni, að því er segir í tilkynningu frá Símanum.

„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu sterkt Hildur byrjar. Þessar viðtökur staðfesta bæði gæði þáttanna og þann kraft sem býr í íslenskri þáttagerð,“ er haft eftir Birki Ágústssyni, framkvæmdastjóra miðla hjá Símanum.

„Gífurlegar vinsældir hinna frábæru bóka Satu Rämö gáfu til kynna að eftirvæntingin fyrir seríunni yrði mikil. Viðtökurnar hafa þó farið fram úr okkar björtustu vonum og staðfesta enn og aftur mikinn áhuga á vönduðum íslenskum leiknum þáttaröðum,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, forstjóri Sagafilm, í tilkynningu.

Þá heur einnig komið fram að þættirnir njóti mikilla vinsælda í Finnlandi. Skarphéðinn Guðmundsson segir á Facebook síðu sinni þann 4. febrúar s.l.:

Hildur er að slá rækilega í gegn í Finnlandi. Nú rúmri viku síðan sýningar hófust á Nelonen hefur verið horft á þættina vel yfir milljón sinnum sem er með því allra mesta sem gerist þar í landi og jafnvel vísbending um að einhver áhorfsmetin verði slegin.

HEIMILDMbl.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR