Eddan mun veita fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni, innsendingarfrestur framlengdur til 2. mars

Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að gera breytingar á Edduverðlaununum og veita einnig öll fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni. Þetta er gert í samráði við Sjónvarpsverðlaunin.

Þeir sjónvarpsframleiðendur sem þegar hafa sent inn verk sín til Eddunnar fá nú tækifæri til að opna innsendinguna sína aftur og bæta við tilnefningum í alla fagverðlaunaflokkana. Sá frestur rennur út mánudaginn 2. mars.

Dagsetning Edduverðlauna liggur ekki fyrir enn sem komið er.

Í fréttatilkynningu frá stjórn ÍKSA segir:

Stjórnir ÍKSA og Sjónvarpsverðlaunanna hafa samþykkt uppfært samkomulag um skiptingu verðlaunaflokka milli Edduverðlaunahátíðarinnar og Sjónvarpsverðlaunanna.

Samkvæmt nýju fyrirkomulagi verða öll fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni veitt á Edduverðlaununum, og bætast þar með við tíu nýir flokkar í Edduna ofan á þá fimm sem kynntir voru nýverið.

Sjónvarpsverðlaunin munu áfram veita verðlaun fyrir besta leikna sjónvarpsefnið, samhliða því að heiðra fjölbreytta dagskrárgerð í sjónvarpi og veita fagverðlaun í þeim flokkum.

Forsvarsaðilar hátíðanna hafa síðustu tvö ár unnið að því, hvor í sínu lagi, að móta tvær sjálfstæðar hátíðir með skýrri aðgreiningu milli kvikmynda og sjónvarpsefnis. Markmiðið hefur verið að styrkja umgjörð verðlauna í takt við aukna grósku í geiranum.

Aðilar eru nú sammála um að skýrari línur milli verðlaunaflokka þjóni best hagsmunum fagfólks í geiranum. Þá er talið eðlilegt og skynsamlegt að fagverðlaun fyrir kvikmyndir og leikið sjónvarpsefni séu veitt innan sömu hátíðar, enda er að stórum hluta um sama fagfólkið að ræða sem vinnur að framleiðslu leikins efnis, óháð miðli.

Stjórnir ÍKSA og Sjónvarpsverðlaunanna hlakka til áframhaldandi samstarfs og þróunar hátíðanna tveggja í takt við breytt landslag og sameiginlega hagsmuni kvikmynda- og sjónvarpsgerðar á Íslandi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR