1,116 gestir sáu Röskun um helgina, en alls nemur aðsókn 2,000 manns að meðtaldri forsýningu.
Þetta er aðsókn á pari við Ástin sem eftir er sem sýnd var síðasta haust og hlaut alls um átta þúsund áhorfendur. Einnig má benda á að þetta er nokkuð lægra en opnunarhelgi Ljósvíkinga haustið 2024 (1,277/2,234) en sú mynd fékk á endanum um átján þúsund gesti.
Aðsókn á íslenskar myndir 16.-22. feb. 2026
| VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
| Ný | Röskun | 1,116 (helgin) | 2,000 (með forsýningu) |
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)













