spot_img

Vísir um DÖNSKU KONUNA: Ferskur andblær

Magnús Jochum Pálsson skrifar um þáttaröðina Danska konan eftir Benedikt Erlingsson á Vísi og segir þættina meðal annars meinfyndna og spennandi.

Magnús skrifar meðal annars:

Íslenskt sjónvarp einkennist alltof oft af lúnum hugmyndum, endurteknu efni og óspennandi úrvinnslu – Danska konan er sannarlega ferskur andblær. Hér eru menn ekki hræddir við að taka sénsa, brjóta upp á formið og takast á við hlutina á öðruvísi máta. Þættirnir eru meinfyndnir, spennandi og innihalda frábæra tónlist.

Benedikt Erlingsson fær áhorfendur til að halda með dönsku konunni Ditte þrátt fyrir móralískar predikanir og ofsafengna frekju sem fer yfir öll mörk. Nýlenduhroki Ditte kemur henni þó í koll og hjálparaðgerðir hennar reynast á endanum til lítils.

Inn í blokkarbaráttu Ditte bætast aðgerðir dönsku leyniþjónustunnar og átök við sænskan mafíósa. Þeir þræðir hafa sinn sjarma en draga því miður athygli frá blokkinni. Sumir íbúanna þar hefðu nefnilega þegið meira pláss og dýpt. Þættirnir líða þó ekki of mikið fyrir það enda er þetta fyrst og fremst saga Ditte.

Leikhópurinn skín undir leikstjórn Benedikts og eru krakkarnir í blokkinni sérstaklega flottir. Stjarna þáttanna er óumdeilanlega Trine Dyrholm sem syngur, dansar og skilar líkamlegri, fallegri og marglaga frammistöðu sem danska konan Ditte Jensen.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR