Þetta er líklega fyrsti mögulegi hápunktur streymisársins – og trúið mér, það er ekki að ástæðulausu! Hér höfum við konu yfir fimmtugt sem er ekki aðeins stjarna þáttaraðar, heldur fær hún líka að leika persónu sem hegðar sér frjálsar, sjálfstæðar og teygir sig lengra út fyrir allar hefðir en við höfum áður (aldrei?) séð í sögu sjónvarps. Sannarlega sjaldgæf, rafmögnuð og stórkostleg veisla frá Íslandi!
Þannig hefst umsögn þýska vefmiðilsins Nexxtpress.de um Dönsku konuna. Lesa má umsögnina hér.
Cineuropa tekur þættina einnig fyrir og þar segir meðal annars:
Það er fátt jafn ánægjulegt og að horfa á einhvern standa með rétti sínum og neita alfarið að sætta sig við neitt rugl. Kannski vegna þess að flest okkar gera það ekki; við kjósum að hefja okkur yfir það þegar okkur er sýnt virðingarleysi, neitum að sökkva niður á lægra plan en samt sem áður líður okkur eins og við séum niðurlægð eftir uppákomuna. Að reyna að hunsa slæma hegðun einhvers virkar aldrei almennilega. Þess vegna er svo gaman að horfa á Yellowstone, til dæmis, með skapstórum persónum sem snarlega brjóta flösku á höfði einhverra eða taka þá á beinið. Þess vegna er svo gaman að horfa á Dönsku konuna eftir Benedikt Erlingsson.
Þættirnir verða einnig sýndir í Svíþjóð og Danmörku á næstunni.
Þættirnir hafa allir verið sýndir í línulegri dagskrá á RÚV og lauk sýningum fyrir rúmri viku.