spot_img

[Stikla] Ari Eldjárn tekur fyrir sígildar íslenskar kvikmyndir í STJÖRNUBÍÓI á RÚV

Stjörnubíó, ný íslensk heimildaþáttaröð í stjórn Ara Eldjárns, hefst á RÚV 14.  febrúar.

Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.

Í fyrsta þættinum er fjallaði um gerð hinnar ástsælu gamanmyndar Stellu í orlofi frá 1986. Meðal þeirra sem fram koma eru Edda Björgvinsdóttir, Laddi, Guðný Halldórsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Halldór Þorgeirsson, Jón Karl Helgason, Ingibjörg Briem og Ingólfur Eldjárn.

Ari Eldjárn tjáir sig um þættina á Facebook síðu sinni:

Stjörnubíó hefst 14. febrúar á RÚV klukkan 19:45! Fyrsti þáttur segir frá gerð Stellu í Orlofi frá 1986.

Ég er þáttastjórnandi og fæ að sýna mig fyrir framan myndavélina en það er Skot Productions sem framleiðir og eiga Gunnar Páll Ólafsson og Samúel Bjarki Pétursson heiðurinn af því að skapa og þróa þáttinn, hvort sem það er leikstjórn klipping, þróun, tónlistarval og så videre. Kristín Andrea hefur sömuleiðis verið ómissandi í að þróa verkefnið sem framleiðandi og fylgja því eftir á öllum stigum – auk þess að eiga heilmikið af skrifunum og rannsóknarvinnunni.

Úlfur Eldjárn semur tónlistina, Haraldur Sigurjónsson klippti, Helgi Hrafn skrifaði handrit, Gunnar Árnason sá um hljóðið og fleiri tugir viðmælenda koma fyrir. Baldvin Vernharðsson stjórnaði kvikmyndatöku og filmaði meðal annars þessa upphafskynningu á forláta Aaton 16mm tökuvél.

Ótal manns þarf að þakka fyrir velvild, vináttu, og hverskyns viðvik og mun það verða gert í mörgum skömmtum á næstu vikum – en rétt er að minnast sérstaklega á Kvikmyndasafn Íslands sem á stóran þátt í því hversu vel tókst í að útvega myndefni!

Það er von okkar að þessir þættir muni skemmta fólki, fræða, varðveita sögur og heimildir og gefa frábærum íslenskum kvikmyndum nýtt líf. Og vekja fólk til vitundar um hvað er GAMAN að til séu íslenskar kvikmyndir og hversu mikilvægt það er að til sé fólk sem er til í að leggja allt á sig til að þær verði að veruleika.

Fylgist með á RÚV frá 14. febrúar!

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR