Gjaldgeng eru verk sem frumsýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025.
Innsendingarferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um viðeigandi verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp fyrir Edduvarpið.
Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti þriðjudaginn 10. febrúar. Strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.
Tilnefningar til Eddunnar 2026 verða kynntar í mars.
Sjá nánar um reglur Eddunnar hér.













