Riz Ahmed mun einnig leika í myndinni. Hún verður gerð fyrir Netflix og framleiðandi er Chernin Entertainment sem einnig stendur að kvikmyndinni Apex sem Baltasar leikstýrir og sýnd verður á Netflix í apríl.
Deadline segir að hjá Netflix ríki ánægja með Apex og að viðræður um næsta leikstjórnarverkefni Baltasars hafi byrjað meðan sú mynd var enn í tökum.
The Big Fix fjallar um lögreglumann sem reynir að hafa hendur í hári manns sem hagræðir úrslitum í fótboltaleikjum. Myndin er innblásin af sönnum atburðum.













