Benedikt kemur víða við í viðtalinu, en hér er útdráttur. Viðtalið má lesa og hlusta á hér.
Ætlaði að heila kvíðasárin með því að bjóða öllum hlutverk á skjánum
Benedikt segist hafa lofað mörgum vinum sínum í leiklistinni hlutverki á skjánum og sumir hafi spurt hvers vegna þau hafi ekki fengið rullu í kvikmyndum hans tveimur. Hann segist í meðvirkni hafa ákveðið að skrifa þætti um fólk í blokk og hann gæti þannig ráðið marga vini sína til að leika íbúa í blokkinni.
Ég vil meina að það sé meðvirkur hvati á bak við þetta allt saman. Litla töfrabarnið mitt vildi leysa öll mín persónulegu vandamál. Öll kvíðasárin mín átti að heila með þessari sjónvarpsseríu.
Þar með er komið enn eitt svarið við klassísku spurningunni um uppruna dönsku konunnar. „Danska konan sprettur upp úr meðvirkni, gæti verið fyrirsögnin,“ segir Benedikt glettinn en bætir því við að konan danska sé líka meðvirk sjálf að hluta.
Við getum líka sagt: Danska konan er meðvirk. Hún er stjórnlaus í stjórnsemi sem er eitt einkenni meðvirkni, að taka ábyrgð á lífi annarra. Þegar fólk gerir það þá örmagnast það og það fer illa.
Benedikt segir einnig síðar:
„Þetta er sagan um andhetjuna sem við Íslendingar ættum að þekkja mætavel, þetta er Egill Skallagrímsson, þetta er Grettir Ásmundarson. Þetta eru andhetjur sem fremja hræðileg ofbeldisverk en við fylgjum þeim samt svo þessi kenning gengur ekki upp að mínu áliti,“ segir hann.
Að því sögðu var hugmyndin að fara alveg að línunni til að gera áhorfendur hrædda, skelfingu lostna. Við eigum að vera hrædd við dönsku konuna en samt fasíneruð af henni. Það er hugmyndin.
Það er þó ekki alltaf erfitt að vera sammála afstöðu hennar þó að viðbrögð hennar fari yfir öll mörk. „Ég skrifa undir skoðanir hennar að miklu leyti en ekki hvað hún gerir, hún fer ansi langt. Hún fer yfir öll mörk,“ segir Benedikt.













